Góðgæti frá Nepal hér í norðrinu Brass ehf hefur opnað Nepalskan veitingastað,“Kitchen” að

Laugavegi 60 í Reykjavík. Með þessu er verið að leggja sitt að mörkum við atvinnusköpun á tímum efnahagserfiðleika í heiminum, en er ráðgert að opna keðju veitingastaða í

Skandinavíu á næstunni. Deepak Pandey er aðalkokkur Brass ehf og er enginn nýgræðingur í matreiðslugeiranum, enda hefur hann unnið hjá ýmsum frægum hótelum og veitingastöðum eins og Bombay Bicycal, þar sem hann starfaði sem höfuðkokkurinn. Á þeim 26 árum sem hann hefur búið og starfað í Lundúnum hefur hann þróað matreiðsluhæfileika sína og hlúð að nýjum hugmyndum varðandi veitinga-húsarekstur ásamt ástríðu sinni fyrir matargerð. Pandey hefur á prjónunum að aðstoða eldri borgara og heimilislausa í Nepal ásamt velgerðarstofnunum hér á Íslandi.


B.R.A.S.S.ehf

Tel: 51 777 95, 57 877 88
Email: info@kitchen-eldhus.is
Kennitala:6509080740
VAT 99682
Laugavegi 60A
101 Reykjavik